Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 379
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Suðurlandsbraut 56. Skipulagssvæðið afmarkast af Fákafeni til suðurs, lóðamörkum að Suðurlandsbraut 46-54 til vesturs, Suðurlandsbraut til norðurs og Skeiðarvogi til austurs. Skipulagsmörkum núgildandi deiliskipulags Skeifunnar, dags. 6. nóvember 2001, verður breytt samhliða. Tillaga að deiliskipulagi gerir ráð fyrir niðurrifi á núverandi byggingu á lóð og að í hennar stað komi tvær íbúðablokkir, 7 og 8 hæða, með 1. - 2. hæða tengibyggingu á milli, með raðhúsaíbúðum og verslunar- og þjónusturýmum á jarðhæðum. Í kjallara er gert ráð fyrir bílageymslu. Sameiginlegur inngarður verður í miðju byggingar ofan á þaki bílageymslu, ásamt sameiginlegum þakgarði ofan á þaki vesturhússins.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, lóðarhafa aðliggjandi lóða, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur og kynna hana fyrir almenningi.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst ekki gegn því að skipulagslýsing fyrir Suðurlandsbraut 56 verði auglýst til að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila um fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu. Mikilvægt er að slík uppbygging fari í opið samráðsferli enda um að ræða verulega breytingu á ásýnd og nýtingu svæðisins. Fulltrúinn hefur þó áhyggjur og er í raun andsnúinn þeim mikla þéttleika sem fyrirhugaður er á lóðinni, þar sem gert er ráð fyrir 7 og 8 hæða byggingum og mjög umfangsmiklu byggingarmagni á tiltölulega litlu svæði. Betur færi á því að uppbyggingin væri hóflegri og á „mannlegri skala“. Mikilvægt er að mat á áhrifum uppbyggingarinnar á umferð, bílastæðamál, hljóðvist, loftgæði og nærliggjandi byggð verði lagt fram snemma í ferlinu svo íbúar og hagaðilar geti gert sér betur grein fyrir áhrifum fyrirætlananna.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Hér í lok kjörtímabilsins, á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð, þegar 10 dagar eru í kosningar og borgarstjórn hefur takmarkað umboð til að taka skuldbindandi ákvarðanir er verið að hraða í gegn stórum og jafnvel umdeildum skipulagsákvörðunum. Fulltrúi óháðra og liðsmaður Miðflokksins telur í ljósi þess að eðlilegra hefði verið að að vísa slíkum ákvörðunum til nýrrar borgarstjórnar enda eru skipulagsmálin mjög umdeild víða og eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.