Vísað til meðferðar Strætó bs. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Augljóst er að merkingum á biðstöðvum og skiptistöðvum strætisvagna í Reykjavík er mjög ábótavant. Leiðakort vantar í flest biðskýli, farþegum til upplýsingar og glöggvunar. Leiðakort í skýlum hafa smám saman týnt tölunni án þess að hirt hafi verið um að setja önnur upp í staðinn. Ótrúlegt er að víða í þeim biðskýlum, þar sem enn er að finna leiðakort, skuli vera um að ræða úrelt kort, sem prentuð voru fyrir breytingar á leiðakerfinu, í júní 2024. Þá er ámælisvert að ekki skuli hafa verið brugðist við ítrekuðum tillögum og ábendingum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um úrbætur á merkingum á Lækjartorgi, sem í raun eru þrjár aðskildar biðstöðvar, A, B og C. Nú eru slíkar merkingar ekki áberandi, sem hefur augljósa ókosti í för með sér fyrir farþega, ekki síst erlenda ferðamenn með takmarkaða þekkingu á strætisvagnakerfinu. Með því að samþykkja ekki fyrirliggjandi tillögu, heldur vísa henni orðalaust til Strætó bs., kemur meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs sér undan því að taka afstöðu til þeirra nauðsynlegu úrbóta sem hún felur í sér. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gagnrýna slíka afgreiðslu enda er að lágmarki hægt að ætlast til þess að fulltrúar meirihlutans taki afstöðu til slíkra tillagna í stað þess að vísa þeim orðalaust annað.