Fyrirspurn
Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Lagt er til að ráðist verði í átak við að bæta merkingar á biðstöðvum og skiptistöðvum strætisvagna í Reykjavík, farþegum til upplýsingar og glöggvunar. 1. Gild leiðarkort verði sett upp á öllum biðstöðvum og skiptistöðvum strætisvagna. Úreltum leiðarkortum, sem prentuð voru fyrir breytingar á leiðakerfinu í júní 2024, verði skipt út, þar sem þau er að finna, og uppfærð kort sett í staðinn. 2. Á leiðaspjöldum á biðstöðvum verði allar stöðvar sýndar, sem fram undan eru. 3. Bæta þarf merkingar á skiptistöðvum, t.d. í Mjódd og Skúlagötu með því að setja þar upp kort af leiðakerfi Strætó í heild sinni. 4. Bæta þarf merkingar á Lækjartorgi. Um er að ræða þrjár biðstöðvar, sem aðgreindar eru með bókstöfunum A, B og C. Rúmlega hundrað metrar og fjórar akreinar skilja að biðstöðvar A og C við Lækjargötu en biðstöð B er við Hverfisgötu. Æskilegt er að hver biðstöð á Lækjartorgi verði merkt viðeigandi bókstaf með áberandi hætti en nú eru merkingar ekki áberandi. 5. Æskilegt er að upplýsingar um biðstöðvar leiða, séu sýndar með skýrum, línulegum merkingum í viðkomandi strætisvögnum, eins og tíðkast víða erlendis, farþegum til glöggvunar. 6. Gera þarf við sjónvarpsskjá í skiptistöðinni í Mjódd, sem veitir farþegum rauntímaupplýsingar um komur og brottfarir strætisvagna. Skjárinn hefur óvirkur um hríð.