Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 1 viku síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 371
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um lýsingu við Tjörnina, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 11. febrúar 2026.
Svar

Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Augljóst er að lýsingu við norðurbakka Tjarnarinnar er mjög ábótavant. Öll ljósker á gönguleið milli Ráðhúss Reykjavíkur og Lækjargötu eru óvirk, um fjörutíu talsins. Með því að samþykkja ekki fyrirliggjandi tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um úrbætur heldur vísa henni orðalaust til meðferðar í kerfinu, kemur meirihlutinn sér undan því að taka afstöðu til málsins. Með því að samþykkja tillöguna, væru skýr skilaboð send til umhverfis- og skipulagssviðs um að bregðast eigi við biluninni og koma áðurnefndum ljóskerjum í lag. Með því að vísa tillögunni til sviðsins orðalaust og án nokkurra skilaboða um úrbætur sýnir vinstri meirihlutinn að hann lætur langvarandi ljósleysi á umræddri gönguleið sér í léttu rúmi liggja. Slík vinnubrögð afhjúpa slaka verkstjórn meirihlutans.