Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi í gær.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1077
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram umsókn Mannverks ehf. , dags. 2. desember 2025, ásamt bréfi Glámu-Kím, dags. 2. desember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Laufásvegar 19 og 21-23 og Þingholtsstrætis 34. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilað verður niðurrif áður byggðra viðbygginga á lóð auk niðurrif veggjar á lóðarmörkum við Þingholtsstræti. Byggingarreitur fyrir nýbyggingu við Þingholtsstræti er skilgreindur og heimilt verður að byggja inndregna þakhæð á hús að Laufásveg. Við breytinguna eykst nýtingarfall lóðar, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti Glámu-Kím, dags. 2. febrúar 2026, br. 25. ágúst 2026, og skuggavarps- og sýringaruppdráttum Glámu-Kím, dags. 2. desember 2025, br. 25. ágúst 2026. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 6. janúar 2026. Tillagan var auglýst frá 12. mars 2026 til og með 29. apríl 2026. Athugasemdir bárust. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. maí 2026 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.