Lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar, dags. 2. júlí 2026, um breytingu á deiliskipulagi Skeifunnar - Fenjanna vegna lóðarinnar nr. 1 við Grensásveg. Í breytingunni sem lögð er til felst í að heimilt verði að byggja hótel á reit B og D, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta, dags. 24. ágúst 2026.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu. Komi til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi að greiða skv. gr. 7.5 og 7.7 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1376/2025.