Lögð fram umsókn
Mannverks ehf.
, dags. 2. desember 2025, ásamt bréfi Glámu-Kím, dags. 2. desember 2025, um breytingu á deiliskipulagi fyrir Laufásveg 19 og 21-23 og Þingholtsstræti 34. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilað er niðurrif áður byggðra viðbygginga á lóð, heimilað er niðurrif veggjar á lóðarmörkum við Þingholtsstræti, byggingarreitur fyrir nýbyggingu við Þingholtsstræti er skilgreindur og nýtingarhlutfall lóðar eykst, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti Glámu-Kím, dags. 2. febrúar 2026, og skuggavarps- og skýringaruppdráttum Glámu-Kím, dags. 2. desember 2025. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 6. janúar 2026.
Svar
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.