Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 364
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í desember 2025, fyrir nýtt deiliskipulag Lambhagalands við Vesturlandsveg. Deiliskipulagssvæðið, Lambhagareitur, er staðsett austan við Vesturlandsveg. Með nýju deiliskipulagi verður afmörkun deiliskipulags samsíða Úlfarsá endurskoðuð. Sérstaða svæðisins skal varðveitast sem mest í borgarmyndinni, góð ræktunarskilyrði eru á svæðinu og rík hefð hefur verið fyrir ræktun og skal það endurspegla hugmyndafræðina að breyttu deiliskipulagi.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Veitum, Minjastofnun, Skrifstofur og svið Reykjavíkurborgar: Skrifstofa framkvæmda og viðhalds, Skrifstofa reksturs og umhirðu, Skrifstofa umhverfisgæða, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, Skóla- og frístundasvið, velferðasvið, íbúasamtökum Grafarholts og Úlfarsárdal og kynna hana fyrir almenningi.