Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kostnað við Brákarborg, sbr. 18. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 15. október 2025. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 20. nóvember 2025.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Heildarkostnaður við endurbyggingu leikskólans Brákarborgar við Kleppsveg er kominn í 3.202 milljónir króna. Kostnaðurinn á enn eftir að hækka þar sem framkvæmdir standa enn yfir við leikskólann en áætlað er að þeim ljúki ekki fyrr en í mars nk. Ljóst er að endurbyggingin er eitt mesta klúður í byggingarsögu Reykjavíkurborgar. Vonandi tekst að ljúka framkvæmdum við Brákarborg án mikils viðbótarkostnaðar og gera leikskólann vel úr garði. Þó verður að spyrja að leikslokum í þeim efnum. Ljóst er að verkefnið er víti til varnaðar fyrir borgarkerfið en ekki síður borgarstjórn. Upplýst hefur verið að á verktíma voru stjórnendur hjá borginni undir miklum pólitískum þrýstingi að ljúka framkvæmdum með hraði, sem kom niður á gæðum verksins. Ljóst er að sá þrýstingur hefur kostað reykvíska skattgreiðendur gífurlegt fé.
Fulltrúar Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Ljóst er að framkvæmdir við endurbyggingu Brákarborgar hafa farið verulega úr skorðum. Heildarkostnaður nemur nú um 3,2 milljörðum króna, þar af um 500 milljónir vegna lagfæringa sem rekja má beint til mistaka í burðarþolshönnun. Kostnaðurinn heldur áfram að hækka og óvissa ríkir enn um endanlegt umfang verkefnisins. Borgaryfirvöld verða að draga lærdóm á þessu verkefni. Hér var farið af stað í tíð vinstri meirihlutans 2018 -2022 með einskonar tilraunaverkefni í hönnun byggingar. Virðingarleysi gagnvart skattpeningum borgarbúa er sláandi og ljóst er að þetta má ekki endurtaka sig.