Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í desember 2025, vegna gerð nýs deiliskipulags fyrir Lambhagaland við Vesturlandsveg. Deiliskipulagssvæðið, Lambhagareitur, er staðsett austan við Vesturlandsveg. Með nýju deiliskipulagi verður afmörkun deiliskipulags samsíða Úlfarsá endurskoðuð. Sérstaða svæðisins skal varðveitast sem mest í borgarmyndinni, góð ræktunarskilyrði eru á svæðinu og rík hefð hefur verið fyrir ræktun og skal það endurspegla hugmyndafræðina að breyttu deiliskipulagi. Lýsingin var í kynningu frá 18. desember 2025 til og með 29. janúar 2026. Umsagnir bárust.
Kynnt.