Síðast Frestað á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 392
Frestað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Landslags og umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 3. nóvember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals vegna Árbæjarlóns, Árbæjarstíflu og Rafstöðvarvegs. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmörkun Árbæjarlóns er fjarlægð þar sem það er ekki lengur til staðar og náttúrulegir árfarvegir Elliðaár skilgreindir í stað lónsins. Þá er skilgreint nýtt hlutverk Árbæjarstíflu sem aðgengileg göngutenging yfir Elliðaárnar ásamt því að breytingar verða á aðliggjandi stígum og áningarstöðum beggja megin stíflunar. Breytingin tekur einnig til Rafstöðvarvegar þar sem breytingar verða á stígakerfi og útfærslum þar sem vegurinn fer um Rafstöðvarsvæðið. Markmiðið er að umhverfi og dalurinn allur verði áfram einstök náttúru- og útivistarperla, skv. uppdrætti Landslags, dags. 27. febrúar 2026 og greinargerð Landslags, dags. 25. febrúar 2026. Einnig er lögð fram skýrsla Verkís, dags. í september 2025, um áhrifamat vatnshlota vegna breytinga á Árbæjarstíflu og framkvæmda við nýja brú. Tillagan var auglýst frá 21. apríl 2026 til og með 2. júní 2026. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram drög að umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. október 2026.
Svar

Frestað.