Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 374
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga Landslags og umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 3. nóvember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals vegna Árbæjarlóns, Árbæjarstíflu og Rafstöðvarvegs. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmörkun Árbæjarlóns er fjarlægð þar sem það er ekki lengur til staðar og náttúrulegir árfarvegir Elliðaár skilgreindir í stað lónsins. Þá er skilgreint nýtt hlutverk Árbæjarstíflu sem aðgengileg göngutenging yfir Elliðaárnar ásamt því að breytingar verða á aðliggjandi stígum og áningarstöðum beggja megin stíflunar. Breytingin tekur einnig til Rafstöðvarvegar þar sem breytingar verða á stígakerfi og útfærslum þar sem vegurinn fer um Rafstöðvarsvæðið. Markmiðið er að umhverfi og dalurinn allur verði áfram einstök náttúru- og útivistarperla, skv. uppdrætti Landslags, dags. 27. febrúar 2026 og greinargerð Landslags, dags. 25. febrúar 2026. Einnig er lögð fram skýrsla Verkís, dags. í september 2025, um áhrifamat vatnshlota vegna breytinga á Árbæjarstíflu og framkvæmda við nýja brú. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fyrir liggur að mál vegna Árbæjarlóns er til meðferðar fyrir dómstólum. Að mati fulltrúa er því eðlilegt og ábyrgt að bíða með auglýsingu deiliskipulags þar til lagaleg staða svæðisins liggur skýrt fyrir. Engin knýjandi þörf er á að hraða skipulagsbreytingunni, sérstaklega í ljósi þess að niðurstöðu dóms er að vænta á næstunni. Falli dómur Reykjavíkurborg í óhag er málið komið í allt aðra stöðu og nauðsynlegt að endurmeta forsendur þess frá grunni. Fyrirliggjandi hugmyndir um að bæta upplifun íbúa og nýtingu ofanverðs Elliðaárdals eru áhugaverðar. Aukin laxagengd bendir jafnframt til þess að náttúran sé að taka jákvæðum breytingum og að þar geti myndast svæði sem Reykvíkingar geta orðið stoltir af. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins kýs ekki gegn tillögunni en situr hjá og lýsir jafnframt andstöðu við að málinu sé hraðað áfram með þessum hætti. Rétt er að bíða með auglýsingu þar til dómur hefur fallið og lagaleg staða málsins er ljós.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Virkilega ánægjulegt að sjá áhrif vinnunnar á lífríki í dalnum einnig ánægjulegt að sjá hversu metnaðarfull vinnan er og hvernig horft er til leiða til að mæta sjónarmiðum andstæðra eininga. Fulltrúi Viðreisnar telur það heilla skref að bæta bæði aðgengi og lýsingu á svæðinu svo fleiri geti notið þessar dásamlegu náttúruperlu.