Lögð fram tillaga Landslags og umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 3. nóvember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals vegna Árbæjarlóns, Árbæjarstíflu og Rafstöðvarvegs. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmörkun Árbæjarlóns er fjarlægð þar sem það er ekki lengur til staðar og náttúrulegir árfarvegir Elliðaár skilgreindir í stað lónsins. Þá er skilgreint nýtt hlutverk Árbæjarstíflu sem aðgengileg göngutenging yfir Elliðaárnar ásamt því að breytingar verða á aðliggjandi stígum og áningarstöðum beggja megin stíflunar. Breytingin tekur einnig til Rafstöðvarvegar þar sem breytingar verða á stígakerfi og útfærslum þar sem vegurinn fer um Rafstöðvarsvæðið. Markmiðið er að umhverfi og dalurinn allur verði áfram einstök náttúru- og útivistarperla, skv. uppdrætti Landslags, dags. 27. febrúar 2026 og greinargerð Landslags, dags. 25. febrúar 2026. Einnig er lögð fram skýrsla Verkís, dags. í september 2025, um áhrifamat vatnshlota vegna breytinga á Árbæjarstíflu og framkvæmda við nýja brú.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.