Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Dalhús, sbr. 24. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 5. nóvember 2025.
Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Vinstri grænna og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokks. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Við hörmum að fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna skuli fella tillögu Sjálfstæðisflokksins um að gripið verði til aðgerða í því skyni að draga úr óþægindum, sem íbúar í Dalhúsum verða fyrir vegna mikillar aðsóknar að skíðasvæðinu í Húsahverfi. Mikil þörf er fyrir slíkar aðgerðir eins og íbúar í Húsahverfi hafa bent á.