Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Skeljanes, sbr. 23. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 5. nóvember 2025.
Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Vinstri grænna og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokksins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Við hörmum að fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna skuli fella tillögu Sjálfstæðisflokksins um úrbætur vegna augljósrar slysagildru á hjólaleið við Skeljanes. Slys hafa orðið á umræddum stað og lýsir það slæmu viðhorfi til umferðaröryggismála að fulltrúar meirihlutans vilji ekki einu sinni að skoðað verði að ráðast í úrbætur á þessum stað.