Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 360
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 27. október 2025 ásamt kæru nr. 164/2025, dags. 24. október 2025, þar sem kærð er ákvörðun skipulags- og byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar, dagsett 24. september 2025, um álagningu dagsekta að fjárhæð 150.000 krónur á dag frá og með 26. september 2025 fyrir hvern dag sem það dregst að slökkva á skilti og fjarlægja það af lóð nr. 6 við Álfabakka í Reykjavík. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður umhverfis- og auðlindamála dags. 4. nóvember 2025. Úrskurðarorð: Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar skipulags- og byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. september 2025, um beitningu dagsekta að fjárhæð 150.000 kr. frá og með 26. september 2025.