Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um áhættumat vegna fyrirhugaðrar Fossvogsbrúar, sbr. 16. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 8. október 2025. Einnig er lögð fram umsögn Betri Samgangna, dags. 29. október 2025.
Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Vinstri grænna og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokks. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Í skýrslu um vindafar á fyrirhugaðri Fossvogsbrú kemur fram að gera megi ráð fyrir 15-20% meiri vindstyrk á brúnni en á Reykjavíkurflugvelli. Haraldur Ólafsson, prófessor í veðurfræði, telur að búast megi við enn hvassari vindi á brúnni en áðurnefnd skýrsla gefur til kynna, enda sé viðnám, sem vindurinn fær af jörðu, mun meira á flugvellinum en yfir sjó. Einnig verði brúin í töluverðri hæð yfir yfirborði sjávar, sem geti aukið vindstyrk verulega. Þá hefur verið bent á að þrenging, sem unnið er að í Fossvogi vegna brúarsmíðinnar, auki straumhraða undir brúnni og að slíkur straumur geti orðið illviðráðanlegur fyrir litla báta og seglskútur. Í umsögn Betri samgangna um tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um áhættumat vegna fyrirhugaðrar Fossvogsbrúar, kemur fram að búast megi við að vindstyrkur verði verulegur á brúnni og til greina komi að ,,setja lokunarpósta á stíga í verstu veðrum.” Gæti verið varhugavert fyrir gangandi og hjólandi að nota brúna um 255 klst. á ári, sem svarar til 10-11 sólarhringum. Tímalengd áætlaðs varúðarstigs fyrir strætisvagna er áætlað 45 klukkustundum á ári, sem svarar til tæplega tveimur sólarhringum. Með hliðsjón af ofangreindu telja Betri samgöngur rétt að rekstraraðili geri áhættumat m.t.t. notkunar brúarinnar og vindafars, sem setur fram viðmið fyrir notkun hennar. Eðlilegt er að slíkt mat fari fram sem fyrst og áður en lengra er haldið með verkefnið.