Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 368
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 27. október 2025 ásamt kæru nr. 164/2025, dags. 24. október 2025, þar sem kærð er ákvörðun skipulags- og byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar, dagsett 24. september 2025, um álagningu dagsekta að fjárhæð 150.000 krónur á dag frá og með 26. september 2025 fyrir hvern dag sem það dregst að slökkva á skilti og fjarlægja það af lóð nr. 6 við Álfabakka í Reykjavík. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 25. nóvember 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 16. janúar 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um að ógilda ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. september 2025 um álagningu dagsekta vegna skiltis á lóð nr. 6 við Álfabakka. Dagsektir sem kunna að hafa verið lagðar á samkvæmt hinni kærðu ákvörðun til og með uppkvaðningu þessa úrskurðar falla niður.