Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 368
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga fulltrúa U3A og Samtaka aldraðra um almenningsbekki. Tillagan var lögð fram á fundi mannréttindaráðs, sbr. 3. liður, dags. 6. nóvember 2025 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
Svar

Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins greiða atkvæði gegn frávísuninni.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna og áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Fulltrúar meirihluta í umhverfis- og skipulagsráði fagna áhuga Samtaka aldraðra, U3A og mannréttindaráðs borgarinnar á almenningsbekkjum og þá sérstaklega minningarbekkjum. Þau atriði sem tilgreind eru í tillögunni eru hins vegar til staðar nú þegar, þar með talið sérstakur ferill um minningabekki. Ljóst er að bæta þarf sýnileika og aðgengi á veraldarvefnum þannig að íbúar í borginni geti kynnt sér betur þessi mál og eins möguleika þeirra til þess að hafa áhrif á staðsetningu almenningsbekkja.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins harma að tillögu Samtaka aldraðra um almenningsbekki og minningarbekki sé vísað frá. Mikilvægt er að skýr stefna sé mótuð um almenningsbekki í því skyni að auka aðgengi og öryggi borgarbúa. Þá er nauðsynlegt að skýrar reglur séu settar um að bekkir séu í öllum strætóskýlum borgarinnar og bekkir númeraðir í borgarlandinu.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Viðreisnar:
Fulltrúi Viðreisnar hefði fagnað meiri undirtekt um hugmyndir um minningarbekki. Að gefa bekkjum í borgarlandinu dýpri og sterkari merkingu væri fagnaðar efni. Einnig harmur að heyra hversu stórt verkferli uppsetning á einum bekk er og bersýnilegt er að hreinsa þarf í verkferlum til að auka hagkvæmi rekstur borgarinnar.