Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 355
Frestað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkir að grípa til aðgerða í því skyni að auka umferðaröryggi og greiða fyrir umferð við gatnamót Víkurvegar, Þúsaldar og Reynisvatnsvegar. Meðal annars verði skoðað hvort tvöfalt hringtorg á þessum gatnamótum geti þjónað áðurnefndu hlutverki. Einnig verði skoðað hvort unnt sé að breikka Víkurveg yfir Vesturlandsveg og leggja rampa frá Vesturlandsvegi að Víkurvegi til að ná þessum markmiðum. Óskað verði eftir samstarfi við Vegagerðina um málið vegna tengingar við mislæg gatnamót Víkurvegar og Vesturlandsvegar.
Svar

Frestað.