Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Óskað er eftir upplýsingum um byggingu fyrirhugaðrar bálstofu í Gufuneskirkjugarði. Hver er staða málsins í kerfinu? Hvar er fyrirhugað að bálstofan rísi og hversu nálægt verður hún íbúðabyggð? Hvernig verður staðið að samráði við íbúa í málinu? Verður tillit tekið til þeirra athugasemda, sem íbúar í Rimahverfi hafa nú þegar gert vegna málsins?