Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. september 2025 ásamt kæru nr. 141/2025, dags. 9. september 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar dags. 9. september 2025 og varðar gáma ofanjarðar nærri heimili kæranda að Öldugötu. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 8. október 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 17. nóvember 2025. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 9. september 2025 um að synja beiðni kæranda um að fjarlægja söfnunargáma sem komið hefur verið fyrir ofanjarðar við grenndarstöð að Hrannarstíg.