Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. september 2025 ásamt kæru nr. 140/2025, dags. 4. september 2025, þar sem kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar um álagningu sorphirðugjalda frá 19. janúar 2024 og 21. janúar 2025. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 15. október 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður umhverfis- og auðlindamála dags. 22. desember 2025. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda ákvörðun Reykjavíkurborgar frá 21. janúar 2025 um álagningu gjalds vegna pappírsúrgangs og plasts frá fasteign kæranda að Kjarrvegi 13. Að öðru leyti er málinu vísað frá úrskurðarnefndinni.