Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 366
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. október 2025 ásamt kæru nr. 153/2025, dags. 8. október 2025, þar sem kærð er afgreiðsla og niðurstaða máls frá 11. september sl. vegna Lágholtsvegar 11, svalir án byggingarleyfis. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 6. nóvember 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 8. janúar 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 11. september 2025 um að beita ekki þvingunarúrræðum vegna óleyfisframkvæmda á lóð nr. 11 við Lágholtsveg.