Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 366
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 29. júlí 2025 ásamt kæru nr. 120/2025, dags. 28. júlí 2025, þar sem kærð er ákvörðun um sorphirðugjald. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkur dags. 28. ágúst 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 22. desember 2025. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda ákvarðanir Reykjavíkurborgar frá 21. janúar og 14. júlí 2025 um álagningu gjalda fyrir úrgang vegna fasteignar kæranda að Vesturbergi 42.