Síðast Vísað til borgarráðs á fundi í gær.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 394
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Yrki arkitekta ehf. , dags. 4. september 2025, um breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits vegna lóðarinnar nr. 4 við Sóltún. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að bæta við inndreginni 6. hæð ofan á húsið. Byggingarmagn helst óbreytt, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Yrki arkitekta ehf. , dags. 20. október 2026. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Viðreisnar taka jákvætt í að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits vegna Sóltúns 4 fari í lögbundið auglýsingarferli. Meirihlutinn leggur áherslu á að stuðla að fjölbreyttri íbúðauppbyggingu og góðri nýtingu byggingarlands á svæðum þar sem innviðir, almenningssamgöngur og þjónusta eru þegar til staðar. Fyrirliggjandi tillaga felur í sér að heimila afmarkaða, inndregna sjöttu hæð á hluta byggingarinnar án þess að heildarbyggingarmagn eða fjöldi íbúða aukist frá fyrri heimildum. Í greinargerð tillögunnar er sérstaklega fjallað um samræmi við Aðalskipulag Reykjavíkur 2040, aðliggjandi byggðarmynstur og áhrif fyrirhugaðrar hækkunar á nærliggjandi byggð. Með því er leitast við að bregðast við þeim annmörkum sem úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála benti á í fyrri afgreiðslu málsins. Meirihlutinn telur mikilvægt að tryggja vandaða uppbyggingu sem tekur mið af nærumhverfi, birtuskilyrðum, skuggavarpi og hagsmunum nágranna. Með auglýsingu tillögunnar gefst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en endanleg afstaða er tekin til breytingarinnar.

105 Reykjavík
Landnúmer: 191884 → skrá.is
Hnitnúmer: 10105667
Síðasta markaðsverð
35.700.000 kr.
Sérbýli · 147 m² · 28.11.2019
Kaupskrá 3 eignir
35.700.000 kr. 28.11.2019
Sérbýli · 147 m² · 3 herb. · bygg. 2009 · HMS
27.400.000 kr. 25.10.2013
Einbýli · 167 m² · 3 herb. · bygg. 2003 · HMS
19.500.000 kr. 25.09.2008
Sérbýli · 137 m² · 3 herb. · HMS
Deiliskipulag
br-dsk Ármannsreits, dreifistöð Orkuveitu Reykjavíkur
Samþykkt 28.02.2001 · Deiliskipulag. Óveruleg breyting