Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. september 2025 var lögð fram umsókn
Yrki arkitekta ehf.
, dags. 4. september 2025, um breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits vegna lóðarinnar nr. 4 við Sóltún. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að bæta við inndreginni 6. hæð ofan á húsið. Byggingarmagn helst óbreytt, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr.
Yrki arkitekta ehf.
, dags. 20. október 2026. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu. Lagt er til að ráðið samþykki tillöguna til auglýsingar.