Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Aðalskipulag Reykjavíkur er ein mikilvægasta stefnumótandi áætlun borgarinnar enda leggur það grunninn að því hvernig Reykjavík þróast og byggist upp til framtíðar. Þar er mörkuð stefna um húsnæðisuppbyggingu, atvinnusvæði, samgöngur, græn svæði og lífsgæði borgarbúa. Mikilvægt er að sú framtíðarsýn taki mið af breyttum þörfum samfélagsins og þeim tækifærum og áskorunum sem borgin stendur frammi fyrir. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að undirbúningur endurskoðunar aðalskipulagsins verði unninn af fagmennsku, með vönduðum greiningum, skýrri markmiðasetningu og víðtæku samráði við íbúa, hagaðila og nágrannasveitarfélög. Sérstaklega þarf að horfa til framtíðarþarfa í húsnæðismálum, þróunar byggðar og samgangna og þess hvernig tryggja megi fjölbreytta og aðlaðandi borg fyrir komandi kynslóðir. Sjálfbærni og loftslagsmál verða jafnframt mikilvægir þættir í vinnunni. Við endurskoðunina þarf að horfa til þess hvernig skipulag borgarinnar getur stuðlað að minni losun gróðurhúsalofttegunda, aukinni nýtingu vistvænna samgöngumáta og ábyrgri nýtingu lands. Jafnframt þarf að huga að aðlögun að loftslagsbreytingum, verndun grænna svæða og líffræðilegrar fjölbreytni og því hvernig skipulag getur stuðlað að heilnæmu og öruggu borgarumhverfi. Endurskoðun aðalskipulags er umfangsmikið og mikilvægt verkefni sem þarf að gefa nauðsynlegan tíma og vinna þverpólitískt og í sátt.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Aðalskipulag Reykjavíkur leggur fram með hvað skýrustum hætti hver framtíðarsýn borgarinnar er hverju sinni. Núgildandi Aðalskipulag Reykjavíkur markaði á sínum tíma vatnaskil um þróun borgarinnar þar sem áratuga útþensla var loks stöðvuð. Í staðinn var sett fram stefna um að efla borgina inn á við og horfa til þess að gera fjölbreyttum ferðamátum hátt undir höfði. Voru þar markmið um betri og mannvænni borg, aukin þjónusta og bætt loft- og hljóðgæði í eldri hverfum borgarinnar höfð að leiðarljósi, auk áherslna í stóra samhenginu um kolefnishlutleysi borgarinnar. Nú liggja fyrir stór verkefni sem borgin þarf að taka til skoðunar og skilgreina hvernig þau styðja sem best við vöxt borgarinnar. Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja að undirbúningur á endurskoðun Aðalskipulags borgarinnar hefjist en leggja áherslu á að hún styrki þá stefnu sem mörkuð var um vöxt innan núverandi vaxtarmarka, uppbyggingu Borgarlínu, fjölbreytt húsnæði fyrir alla tekjuhópa, auknar kröfur um gróðursvæði og sólrík dvalarsvæði, Miklubrautargöng, Sæbrautarstokk og mat á kolefnisspori nýrra uppbyggingarsvæða. Endurskoðunin má ekki leið aftur til ótakmarkaðrar útþenslu byggðar sem kostar borgarbúa meira í innviðum, tíma, losun og það sem verst er, vondu borgarumhverfi.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:
Það er mikilvægt að borgarskipulagið sé í stöðugri þróun og endurskoðun með tilliti til breyttrar samfélagsgerðar. Þrátt fyrir fjölmargar eldri kannanir á búsetuóskum og húsnæðisþörfum Reykvíkinga hefur því miður ekki verið unnið skipulega með þær niðurstöður. Samkvæmt gögnum frá HMS hefur til dæmis ekki verið tekið nægjanlegt tillit til óska eldra fólks um það hvernig það vill búa. Þetta hefur m.a. orðið þess valdandi að húsnæðishringrásin hefur nánast stíflast. Eldri borgarar sitja fastir í stórum eignum, um það bil helmingur þeirra vill minnka við sig en finna ekkert við sitt hæfi. Vonandi verður væntanlegt samstarf við HMS og SSH til þess að hlustað verði betur á íbúa og nákvæmari kannanir gerðar fyrir alla aldurshópa og tekjuhópa. Hinn svokallaði markaður er greinilega ekki að byggja það sem fólk vill.