Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 381
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á vinningstillögu vegna rammaskipulagsgerðar fyrir svæði Halla og nágrenni í Úlfarsárdal.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í umhverfis- og skipulagsráði þakka fyrir góða kynningu á vinningstillögu hugmyndaleitar. Ljóst er að um er að ræða mikilvægt tækifæri til að byggja upp nýtt, blandað og fjölskylduvænt íbúðarhverfi sem styrkir Grafarholt og Úlfarsárdal og nýtir sérstöðu svæðisins með góðu samspili byggðar og náttúru. Fram undan er mikilvægt samráðsferli þar sem útfæra þarf tillöguna nánar. Þar þarf meðal annars að skoða byggðamynstur, þéttleika, húsagerðir, íbúðasamsetningu, þjónustu í hverfinu og samgöngur með það að markmiði að skapa fjölbreytt og aðlaðandi hverfi sem mætir þörfum fjölskyldna, styrkir þjónustu í austurhluta borgarinnar og fellur vel að nærumhverfi sínu. Mikilvægt er að skipulag þessa nýja hverfis verði unnið í samráði við íbúa, atvinnurekendur og aðra þjónustuaðila á svæðinu. Jafnframt þarf að huga að því að innviðir fylgi uppbyggingu hverfisins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Skipulagstillagan úr hugmyndasamkeppni fyrir uppbyggingu að Höllum byggir á skýrri hugmyndafræði með sterkum vísunum í eldri hverfi Reykjavíkur svo sem Vesturbæ, Hlíðar, Fossvog og Álfheima útfrá íbúðaþéttleika og -gerðum. Tillagan gerir ráð fyrir að byggðin fléttist saman við græn svæði hverfisins og er í miklu návígi við frábær útivistarsvæði í nágrenni Halla, svo sem Úlfarsárdal og Úlfarsfell. Mikilvægt er að ný byggð á svæðinu fái góða tenginu við öflugar almenningssamgöngur og styðji við möguleika á öflugri nærþjónustu fyrir alla byggðina í Úlfarsárdal. Samhliða þarf að greina ítarlega áætlaðan bílafjöldi í hinu nýja hverfi og meta í samgöngumati hvaða áhrif fjölgun þeirra mun hafa á umferð og álag á stofnbrautum borgarinnar á álagstímum. Nýr meirihluti er hvattur til að nálgast þróun á skipulagi við uppbyggingu Halla með jákvæðum hug og láta sjálfa tillöguna leiða fram hvaða fjölda íbúða er möguleiki á að byggja á svæðinu.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Meirihlutinn hefur boðað endurskoðun á skipulagi nýs hverfis og uppbyggingu húsnæðis í Höllum og hefur hann borið fyrir sig í opinberri umræðu að þéttleikinn sé of mikill og hann þarfnist endurskoðunar. Það stenst enga skoðun og var vinningstillagan vandlega útfærð með tilliti til þess sem svæðið getur borið og þeirra innviða sem hverfið í Úlfarsárdal hefur kallað eftir. Núverandi skipulag gerir ráð fyrir fjölbreyttu íbúðaformi; litlum og stærri fjölbýlishúsum, sérbýlum, raðhúsum og punkthúsum. Í samanburði við önnur hverfi t.d. í Vesturbæ sem er þéttbýlasta hverfi borgarinnar með 5.170 íbúa á hvern ferkílómetra þá má benda á að Grafarholt/Úlfarsárdalur er eitt strjálbýlasta hverfið með 392 íbúa á hvern ferkílómetra. Með uppbyggingu í Höllum kemst meira jafnvægi á milli hverfa í Reykjavík og yrði fyrirhuguð og núverandi uppbygging þar til mikilla bóta. Brýnt er að halda rétt á spöðum svo ekki verði frekari tafir á uppbyggingu og framboð á húsnæði í Reykjavík eins og virðist ætla að stefna í með núverandi flokka við stjórnvölinn.