Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 381
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á undirbúningi Sæbrautarstokks, mati á umhverfisáhrifum og tillögu að deiliskipulagi.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í umhverfis- og skipulagsráði þakka góða kynningu á Sæbrautarstokki og telja að verkefnið geti orðið mikilvægt framfaraskref fyrir samgöngur og borgarumhverfi Reykjavíkur. Stokkurinn getur bætt umferðaröryggi og flæði með mislægum gatnamótum við Kleppsmýrarveg og Skeiðarvog, styrkt tengingar fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur og skapað um leið nýtt borgarrými með gróðri og útivist ofan á stokknum. Jafnframt getur framkvæmdin dregið úr hávaða og bætt loftgæði í nærliggjandi byggð auk þess að skapa forsendur fyrir áframhaldandi uppbyggingu í Vogabyggð og Ártúnshöfða. Mikilvægt er að áfram verði unnið markvisst að því að lágmarka áhrif framkvæmda á íbúa og atvinnustarfsemi á framkvæmdatíma og að vöktun loftgæða, hljóðvistar og annarra umhverfisáhrifa verði tryggð frá upphafi til loka verkefnisins. Þá er mikilvægt að gætt verði sérstaklega að vernd listaverka Gerðar Helgadóttur í samstarfi við Gerðarsafn. Meirihlutinn leggur áherslu á að við áframhaldandi undirbúning verði verkefnið útfært með hagkvæmni, skýru kostnaðareftirliti og þeim sveigjanleika sem nauðsynlegur er við endurskoðun forgangsröðunar samgönguframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna þeim mikilvægu áföngum sem hér eru kynntir í undirbúningi Sæbrautarstokksins. Verkefnið er lykilskref í átt að nútímalegri höfuðborg; það fjarlægir mengun og umferðarhávaða úr bakgörðum íbúa, tryggir forgang almenningssamgangna og virkra ferðamáta á yfirborðinu og sameinar Vogabyggð við ströndina með dýrmætu grænu almenningsrými. Jafnframt því sem verkefninu er fagnað, leggjum við ríka áherslu á að endanleg hönnun og deiliskipulag verði fullkomlega samstillt við komandi legu Sundabrautar. Það er rekstrarleg og skipulagsleg áhætta að læsa hönnun Sæbrautar án þess að fyrir liggi nákvæmlega hvernig tengingum Sundabrautar inn í borgarkerfið verður háttað. Við áframhaldandi þróun og hönnun framkvæmdarinnar þarf að skoða betur gatnamótin við Kleppsmýrarveg þannig að þau fái yfirbragð borgargötu fremur en að þau hafi ásýnd landfrekra mislægra gatnamóta. Að lokum er tekið undir áhyggjur um framtíð listaverks Gerðar Helgadóttur. Vinna þarf að verndun verksins í samráði við Gerðarsafn.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Ekki verður við unað á frekari töfum á samgöngubótum fyrir fjölbreytta ferðamáta og almenningssamgöngur eða óbreytt ástand á samgönguinnviðum og akvegum eins og meirihlutinn hefur boðað. Deiliskipulag Sæbrautarstokks er nú í auglýsingu og búið er að gera grein fyrir mótvægisaðgerðum til að minnka rask sem verður á framkvæmdatíma hans s.s. hljóð- og loftmengun, umferðartöfum og mikilvægi á verndun menningarminja. Vanda þarf til verka við að framfylgja þeim. Framkvæmdin við Sæbrautarstokk er áætluð til næstu fjögurra ára og helst hún í hendur við aðrar aðliggjandi og brýnar framkvæmdir fyrir fyrsta áfanga Borgarlínu. Nú hafa Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsóknarflokkur hætt við fyrirliggjandi framkvæmdir fyrir Borgarlínu á Suðurlandsbraut sem tefur framgang samgöngubóta á höfuðborgarsvæðinu. Það er von fulltrúa Vinstrisins að ekki verði eins farið með Sæbrautarstokkinn þegar hann kemur úr auglýsingu enda er markmið hans að draga úr neikvæðum áhrifum umferðar og bæta tengingar og öryggi fyrir fjölbreytta ferðamáta og er eitt af hryggjarstykkjunum í að innleiða skilvirkar, áreiðanlegar og umhverfisvænar almenningssamgöngur sem mikill fjárhagslegur og félagslegur ábati hlýst af. Það er dapurlegt hvernig núverandi stjórnvöld í Reykjavík standa gegn framförum og almannahagsmunum með hugmyndafræði sinni og ákvörðunum sínum.