Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 376
Annað
Fyrirspurn
Fært úr trúnaðarbók, samantekt valnefndar um tillögur sem bárust vegna hugmyndaleitar rammaskipulagsgerðar fyrir svæði Halla og nágrenni í Úlfarsárdal. Kjartan Magnússon, óháður fulltrúi lagði fram svohljóðandi bókun: Fyrirætlanir meirihluta borgarstjórnar um umfangsmikla uppbyggingu íbúahverfis í Höllum og nágrenni einkennast af ofurþéttingu og taka ekki mið af raunverulegum forsendum í Úlfarsárdal og Grafarholti. Samkvæmt fyrra skipulagi var gert ráð fyrir um 1.100 íbúðum á svæðinu. Borgarstjóri hefur tilkynnt að hafinn sé undirbúningur sé hafinn að uppbyggingu allt að fjögur þúsund íbúða hverfis á umræddu svæði í samstarfi við innviðafélag. Til samanburðar eru um 4.500 íbúðir í Árbæjarhverfi og um 8.000 í Grafarvogshverfi. Núverandi innviðir í hverfinu bera ekki þá fjölgun íbúa sem fyrirhuguð samkvæmt yfirlýsingu borgarstjóra. Heildstæð framtíðarsýn hefur ekki verið kynnt hvernig staðið verður að samgöngum, skólahaldi, heilsugæslu og öðrum lífsgæðum í þessu stóra hverfi. Ljóst er að með slíkri ofurþéttingu verður umferðarskipulagi í Grafarholti og Úlfarsárdal stefnt í fullkomið uppnám. Þá er ljóst að miðað við almennar skipulagsforsendur vinstri meirihlutans í borgarstjórn, verður mikill skortur á bílastæðum hverfinu og líklegt að íbúar þeirra leiti í næstu hverfi í því skyni. Borgarfulltrúar Miðflokksins leggja áherslu á að skipulag í Höllum verði unnið í víðtæku samráði við íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal. Miðað verði við hóflegt byggingarmagn og að innviðir byggðir upp samhliða íbúabyggð. Áhersla verði lögð á gott umferðarskipulag og næg bílastæði fyrir íbúa. Heildstætt mat verði gert á umferðaröryggi, hljóðvist og loftgæðum.