Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 23. júlí 2025 ásamt kæru nr. 116/2025, dags. 23. júlí 2025, þar sem kærð er ákvörðun frá 13. maí s.á. um að samþykkja byggingaráform. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkur dags. 13. ágúst 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 2. október 2025. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 13. maí 2025 um að samþykkja umsókn um leyfi til að innrétta Konukot fyrir 12 skjólstæðinga á annarri hæð og tímabundið búsetuúrræði fyrir sex skjólstæðinga á þriðju hæð í húsi á lóð nr. 34 við Ármúla.