Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 366
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna- og borgarhönnunar dags. 6. janúar 2026, þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki í tilraunaskyni annars vegar að akstur leiðar 18 um Varmahlíð á leið til austurs, milli rampa og Kapellutorgs, í stað þess að aka Bústaðaveg á sama kafla og hins vegar endurgerð gamallar strætóstöðvar fyrir leið 18 við Varmahlíð, milli duftkirkjugarðs og Perlunnar.
Svar

Samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins minna á tillögu sína frá september 2023 um að umbætur verði gerðar á stígakerfi Öskjuhlíðar í því skyni að bæta tengingar milli Perlunnar og biðstöðvar strætisvagna við Bústaðaveg. Fyrirliggjandi tillaga felur í sér myndarlegar umbætur að þessu leyti og er því sjálfsagt að fagna henni. Minnt er á að samkvæmt fyrrnefndri tillögu sjálfstæðismanna var einnig lagt til að tengdir yrðu saman göngu- og hjólastígar milli Varmahlíðar og Flugvallarvegar og þeir gerðir greiðfærir. Slíkar tengingar eru á deiliskipulagi og hvetjum við til þess að þær verði að veruleika sem fyrst.