Bragagata 26A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 dögum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1248
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt um áður gerða framkvæmd þar sem skipulagi kjallara var breytt, fjarlægja kvist á norðurþekju, stækka og endurgera kvist á suðurþekju einbýlishýsi á lóð nr. 26A við Bragagötu. Stækkun: 0,5 ferm., 29,0 rúmm. Erindi fylgja skuggavarpsteikningar dags. 5. júní 2025 og yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 9. janúar 2018. Erindið var samþykkt á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Reykjavíkur nr. 1234 , 2. desember sl. Í ljós hefur komið að ekki var tekin afstaða til þess af hálfu skipulagsfulltrúa hvort tilefni væri til að falla frá grenndarkynningu vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir endurgerð þaks hússins á lóð 26A við Bragagötu, sbr. fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. september 2025. Ákvörðun byggingarfulltrúa um að samþykkja byggingarleyfi er því haldin ógildingarannmarka og áformar byggingarfulltrúi af þeim sökum að afturkalla ákvörðun um samþykki byggingarleyfis og taka umsóknina aftur til vinnslu.
Svar

Samþykkt.