Fyrirspurn
Sótt um áður gerða framkvæmd þar sem skipulagi kjallara var breytt, kvistur á norðurþekju
fjarlægður, og kvistur stækkaður og endurgerður á suðurþekju einbýlishúss á lóð nr. 26A
við Bragagötu. Samþykkt á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Reykjavíkur nr. 1234, 2.
desember 2025. Með vísun til 5. liðar bókunar á afgreiðslufundi 17. mars 2026 nr. 1248
vegna Bragagötu 26A telur byggingarfulltrúi ákvörðun um samþykki byggingarleyfis 2.
desember sl. hafi verið haldin ógildingarannmarka þar sem ekki hafi verið metið hvort
grenndarkynningar væri þörf af hálfu skipulagsfulltrúa.
Hluti byggingarleyfis sem tekur til stækkunar og endurgerðar kvists á suðurþekju hússins
er hér með afturkallaður og málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.