Bragagata 26A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 viku síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1262
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt um byggingarleyfi til að fjarlægja kvist á norðurþekju, stækka og endurgera kvist á suðurþekju einbýlishúss á lóð nr. 26A við Bragagötu. Stækkun: 0.5 ferm., 29.0 rúmm. Erindi fylgja skuggavarpsteikningar dags. 5. júní 2025 og yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 9. janúar 2018. Í framhaldi af kæru frá nágranna var endurmetið af hálfu skipulagsfulltrúa hvort grenndaráhrif væru af breytingunni, og komist að þeirri niðurstöðu að einhver grenndaráhrif yrðu, þrátt fyrir að þau væru afar takmörkuð. Var því ákveðið að afturkalla ákvörðun um veitingu byggingarleyfis, og taka málið upp að nýju og ljúka með réttri málsmeðferð, þ.m.t. grenndarkynningu. Á fundi skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2026 var ákveðið að falla frá grenndarkynningu vegna málsins sbr. umsögn skipulagsfulltrúa.
Svar

Samþykkt með vísan í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2026.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.