Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 1 viku síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 380
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram lýsing Aðalskipulags Reykjavíkur 2040, skipulagsgerðar og drög að tillögu Borgarspítalareits, Geðsviðs LSH í Fossvogi (S13 og ÍB21). Stækkun svæðis fyrir samfélagsþjónustu dags. ódags. Lagt er til að lýsingin verði kynnt og leitað umsagna þeirra aðila sem taldir eru upp í henni.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu að aðalskipulagi í samræmi við 1. - 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins, Kópavogsbæ, Garðabæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Seltjarnarneskaupstað, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp, Skipulagsstofnun, Vegagerðinni, Umhverfis- og orkustofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Minjastofnun, Borgarsögusafni, Veitum, Íbúasamtökum í Háaleitis- og Bústaðahverfum, LSH-Landspítala og kynna hana fyrir almenningi.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks styðja að unnið verði áfram að skipulagsgerð og aðalskipulagsbreytingu fyrir nýtt geðsvið Landspítala og telur mikilvægt að geðþjónusta Landspítala fái nútímalega aðstöðu í grænu og batamiðuðu umhverfi, í samræmi við markmið lýsingarinnar. Jafnframt er áréttað að með fyrirhugaðri breytingu er horfið frá fyrri áformum um íbúðauppbyggingu á hluta Borgarspítalareitsins sem byggðu á fyrri samningum og viljayfirlýsingum milli ríkisins og Reykjavíkurborgar. Mikilvægt er því að áður en endanleg tillaga að aðalskipulagsbreytingu verður lögð fram liggi fyrir samningur milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um afnot og úthlutun landsins til Landspítala, auk skýrrar niðurstöðu um hvernig brugðist verði við þeirri húsnæðisuppbyggingu sem fellur niður vegna breytingarinnar.
Lögð fram svohljóðandi bókun Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja mikilvæga og löngu tímabæra uppbyggingu nýs geðsviðs Landspítalans á grundvelli nútímalegra viðhorfa um batamiðað meðferðarumhverfi. Sú staðreynd að 5,4 hektara svæði, sem áður var eyrnamerkt íbúðarbyggð borgarinnar (um 200 íbúðir), sé tekið undir starfsemi spítalans kallar þó á ríka hagsmunagæslu af hálfu Reykjavíkurborgar. Samfylkingin leggur ríka áherslu á að nýr samningur milli borgar og ríkis um úthlutun landsins liggi fyrir og tryggi hagsmuni borgarbúa áður en gengið verður frá aðalskipulagstillögu til lögformlegrar auglýsingar. Jafnframt verður að liggja fyrir hvar skipuleggja eigi þessar 200 íbúðir í Reykjavík í staðinn. Tekið er undir orð embættis skipulagsfulltrúa um áskoranir við fyrirhugaða uppbyggingu á lóðinni þar sem áherslur um batamiðað húsnæði takast á við sjónarmið um að gæta þurfi að áhrifum á nærliggjandi byggð og ásýnd Borgarspítalans. Mikilvægt er að mörkuð verði heildræn sýn um framtíðaruppbyggingu lóðarinnar í heild sinni. Að lokum er vakin athygli á því að opinberar spár gera ráð fyrir tvöföldun á göngudeildarkomum til ársins 2040, en gögn ráðuneytisins sýna líka 22% raunvöxt í réttargeðlækningum milli ára sem spálíkön virðast ganga framhjá. Brýnt er að deiliskipulagsferlið taki mið af þessum rauntölum, tryggi hljóðvist, skýra lausn á staðsetningu þyrlupalls og fullnægjandi samráð við íbúa hverfisins.