Samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun umhverfis- og skipulagsráðs:
Umhverfis- og skipulagsráð óskar eftir að fá kynningu á teikningum á fyrirhuguðum byggingum við Vesturbugt þegar þær liggja fyrir. Útfærsla uppbyggingar á svæðinu hefur vakið lifandi samfélagsumræðu um hvernig svæðið tengist eldri byggð handan Mýrargötu. Ef uppbyggingaraðili svæðisins hefði áhuga á að aðlaga reitinn enn betur við aðliggjandi byggð með uppfærslu á deiliskipulagi svæðisins myndu fulltrúar ráðsins taka vel í það.