Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Óskað er eftir því að skýrar myndir af fyrirhuguðum byggingum við Vesturbugt verði lagðar fyrir umhverfis- og skipulagsráð sem fyrst svo hægt verði að átta sig á útliti þeirra. Meðal annars verði sýndar myndir frá mannlegu sjónarhorni, þ.e. þrívíddarmyndir séðar úr götuhæð.