Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 350
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í júlí 2025, vegna fyrirhugaðrar íbúðauppbyggingar á lóðinni að Laugarásvegi 59. Stefnt er að því að byggja íbúðarhús á tveimur til þremur hæðum á núverandi lóð (þ.e. kjallari, jarðhæð og hæð með risi), í formi tvíbýlishúss. Þar sem hvorri íbúð fyrir sig verði heimilt að koma fyrir aukaíbúð innan íbúðar til að koma til móts við mismunandi fjölskyldumynstur og stærðir fjölskyldna. Einnig er lagt fram minnisblað dags. 28. júlí 2025.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum ohf., Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar og skrifstofu umhverfisgæða og kynna hana fyrir almenningi.