Köllunarklettur - Skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1036
11. nóvember, 2025
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í september 2025, vegna nýs deiliskipulags fyrir Köllunarklett. Svæðið afmarkast af Sæbraut, Klettagörðum, Héðinsgötu, Köllunarklettsvegi og Sundagörðum. Megintilgangur með skipulagslýsingunni og í framhaldi deiliskipulagsvinnunni er að móta svæðið með tilliti til blandaðrar byggðar og vistvænum áherslum. Lýsingin var kynnt frá 9. október 2025 til og með 6. nóvember 2025. Athugasemdir bárust.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til meðferðar verkefnastjóra.