Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1036
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Trípólí ehf. , dags. 6. febrúar 2025, ásamt bréfi, dags. 5. febrúar 2025, um breyting á deiliskipulagi fyrir reit 1.174.0, Landsbankareit, vegna lóðarinnar nr. 77 við Laugaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að breyta notkun 2. til 5. hæðar hússins úr skrifstofum í íbúðir, en halda verslun áfram á neðstu hæð, og stækka þakhæð m.a. til að tengja stigahús vestur við efstu hæð hússins, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Trípólí arkitekta, dags. 27. maí 2025. Tillagan var í kynningu frá 24. júlí 2025 til og með 4. september 2025. Engar athugasemdir bárust.
Leiðrétt bókun frá fundi skipulagsfulltrúa 16. september 2025.
Rétt bókun er: Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Svar

Rétt bókun er: Vísað til meðferðar verkefnastjóra.