Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 355
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í september 2025, vegna nýs deiliskipulags fyrir Köllunarklett. Svæðið afmarkast af Sæbraut, Klettagörðum, Héðinsgötu, Köllunarklettsvegi og Sundagörðum. Megintilgangur með skipulagslýsingunni og í framhaldi deiliskipulagsvinnunni er að móta svæðið með tilliti til blandaðrar byggðar og vistvænum áherslum.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Faxaflóahöfnum, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum ohf, Vegagerðinni, Strætó bs, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, umhverfis- og skipulagssviði; skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, skrifstofu umhverfisgæða, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, skóla og frístundarsviði og kynna hana fyrir almenningi. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks undirstrika mikilvægi þess að fyrirhuguð uppbygging þrengi ekki að starfsemi Sundahafnar og stækkunarmöguleikum hennar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Fulltrúi Framsóknar hefur efasemdir um það skipulagsferli sem er að eiga sér stað við Köllunarklett vegna hugmyndir um Lífsgæðakjarna inn á það sem er skilgreint sem hafnar/iðnaðarsvæði í dag. Borgarskipulag þarf að vinna með miklum fyrirsjáanleika, undanfarin misseri hefur þéttingarstefna borgarinnar valdið því að atvinnustarfssemi hefur færst af meira mæli út í ytri mörk borgar. Þessi tillaga býr til ákveðna óvissu ekki ólíkt þeirri sem hefur gerst í kringum Reykjavíkurflugvöll, þar sem stöðugt hefur verið þrengt að flugvellinum með tilheyrandi ágreining milli hagsmunaaðila.