Laugarásvegur 59 - Laugardalur - Skipulagslýsing - Húsnæðisátak
Laugarásvegur 59
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1023
14. ágúst, 2025
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í júlí 2025, vegna fyrirhugaðrar íbúðauppbyggingar á lóðinni að Laugarásvegi 59. Stefnt er að því að byggja íbúðarhús á tveimur til þremur hæðum á núverandi lóð (þ.e. kjallari, jarðhæð og hæð með risi), í formi tvíbýlishúss. Þar sem hvorri íbúð fyrir sig verði heimilt að koma fyrir aukaíbúð innan íbúðar til að koma til móts við mismunandi fjölskyldumynstur og stærðir fjölskyldna. Einnig er lagt fram minnisblað dags. 28. júlí 2025.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.