Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 378
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar um húsnæðiseiningar í slæmu ástandi sbr. 39. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 5. mars 2025. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, byggingarfulltrúa, dags. 21. apríl 2026.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Fulltrúi Viðreisnar gerir athugasemdir við að borgin haldi engri yfirsýn yfir þær eignir sem skaðlegar eru íbúum sem og gestum borgarinnar. Válisti sem uppfærður er reglulega og ástand metið reglulega væri bót fyrir okkur öll og er það sýn fulltrúans að borgin stæði betur með slíka yfirsýn en án hennar. Slíkur listi ætti að vera samstarfsverkefni, borgarinnar, heilbrigðiseftirlits, slökkviliðs og lögreglu. Að eiga eign á slíkum lista gæti skapað viðbótar þrýsting til úrbóta. Þó til falli kostnaður við að halda yfirsýn snýst þetta um heilsu og öryggi íbúa sem og gesta sem og ásýnd borgarinnar í heild og því kostnaður sem erfitt er að vera mótfallin.