Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 378
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna um bætt loftgæði. Tillagan var lögð fram á fundi borgarstjórnar, sbr. 5. liður, dags. 3. mars 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. Lögð fram svohljóðandi meðferðartillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata, Vinstri grænna og áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins: Umhverfis- og skipulagsráð felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að taka saman minnisblað um þær aðgerðir sem Reykjavíkurborg getur farið í til að bæta loftgæði í borginni og hverjir væru mögulegir og/eða nauðsynlegir samstarfsaðilar. Einnig skal í minnisblaðinu taka saman yfirlit yfir það sem gert hefur verið undanfarin ár til að bæta loftgæði í borginni.
Svar

Samþykkt. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.