Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Viðreisnar:
Fulltrúi Viðreisnar óskar upplýsinga um hve margar húsnæðiseiningar standa í dag í slæmu ástandi, svo slæmu að það er hvorki íbúðarhæft né starfshæft fyrir vinnustað. Vísa ég þá til dæmis til eignar við Grettisgötu 87. Hversu margar eignir eru í sambærilegri stöðu innan borgarmarkanna? Ef slíkar upplýsingar liggja ekki fyrir telur fulltrúi Viðreisnar að það sé til bóta fyrir borgina að halda sérstaklega utan um slíkar eignir. Hvaða heimildir liggja fyrir til að aðhafast í slíkum málum hvort sem er öflun gagna og til að knýja til betrumbóta?