Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. febrúar 2025 var lögð fram umsókn
Brimgarða ehf.
, dags. 11. febrúar 2025, um framkvæmdaleyfi vegna landmótunar austan við lóð nr. 10 við Sundagarða í framhaldi af stækkun athafnarsvæðis og nýrra bygginga á lóðinni. Einnig er lagður fram uppdráttur Arkþings/Nordic, dags. 13. desember 2023 og verklýsing, ódags. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. júní 2025.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 5. júní 2025.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024. Þegar greiðsla berst fer málið til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis.