Suðurlandsbraut frá Kringlumýrarbraut að Reykjavegi - Framkvæmdaleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1014
5. júní, 2025
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. maí 2025 var lögð fram umsókn Veitna ohf. , dags. 27. mars 2025, um framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar tveggja stofnæða fyrir heitt vatn frá Kringlumýrarbraut að Reykjavegi. Annars vegar er um að ræða safnæð frá borholum á svæðinu sem og hins vegar stofnæð. Einnig er lagt fram teikningasett Verkís, dags. 27. febrúar 2025 og Verklýsing, dags. 17. september 2024. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. júní 2025.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 5. júní 2025.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024. Þegar greiðsla berst fer málið til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis.
Svar