Lögð fram umsókn
Brimgarða ehf.
, dags. 11. febrúar 2025, um framkvæmdaleyfi vegna landmótunar austan við lóð nr. 10 við Sundagarða í framhaldi af stækkun athafnarsvæðis og nýrra bygginga á lóðinni.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1381/2024.